LOSAÐU ÞIG VIÐ LÚSMÝ OG ANNAÐ BITMÝ

Njóttu SUMARSINS
án lúsmýs

Predator Dynamic er eitt öflugasta tækið á markaðnum gegn lúsmýi, bitmýi og moskítóflugum. Þessi þrautreynda, sænska flugugildra hefur sannað gildi sitt allt frá árinu 2009. Tækið laðar að sér bitflugur sem sækja í blóð manna og dýra og fangar þær á skilvirkan hátt. Gildran starfar allan sólarhringinn og ver gegn flugum á allt að 5.000 m² svæði - án eiturefna, hávaða eða daglegs viðhalds.

Enn eru nokkrir Predatorar á lager úr síðustu sendingu sumarsins!Fangaðu lúsmýið núna og minnkaðu stofninn fyrir næsta sumar. Vertu tilbúin frá fyrstu flugu næsta sumar og fáðu sumarið þitt aftur!

Predator.is er umboðsaðili Predator Dynamic á Íslandi.

LOSAÐU ÞIG VIÐ LÚSMÝ OG ANNAÐ BITMÝ

Njóttu SUMARSINS
án lúsmýs

Predator Dynamic er eitt öflugasta tækið á markaðnum gegn lúsmýi, bitmýi og moskítóflugum. Þessi þrautreynda, sænska flugugildra hefur sannað gildi sitt allt frá árinu 2009. Tækið laðar að sér bitflugur sem sækja í blóð manna og dýra og fangar þær á skilvirkan hátt. Gildran starfar allan sólarhringinn og ver gegn flugum á allt að 5.000 m² svæði - án eiturefna, hávaða eða daglegs viðhalds.

Enn eru nokkrir Predatorar á lager úr síðustu sendingu sumarsins.Fangaðu lúsmýið núna og minnkaðu stofninn fyrir næsta sumar. Vertu tilbúin frá fyrstu flugu næsta sumar og fáðu sumarið þitt aftur!

Predator.is er umboðsaðili Predator Dynamics á Íslandi.

Predator Dynamics

VIDEO KYNNING


Láttu Sibba segja þér frá Predator Dynamic.

Hvernig virkar þetta?

Predator bjargar sumrinu


Hvort sem þú ert heima í garðinum, við sumarbústaðinn, á golfvellinum eða á tjaldsvæði, þá geta flugur fljótt orðið vandamál. Þú ætlar að grilla, sitja úti eða njóta kvöldsins, en flugurnar taka yfir. Góðir sumardagar og kvöld verða skyndilega að flótta undan lúsmýi og bitmýi.Eitur og ilmefni virka skammt, og margar hefðbundnar flugnagildrur ná ekki vel til flugnanna sem bíta og sjúga blóð.

Predator Dynamic er önnur nálgun. Tækið er svokölluð fýlugildra ekki bara hefðbundin flugugildra. Predator laðar flugurnar að sér með hita, UV ljósi, raka, losar koltvísýring og notar Octenol lyktarbeitu sem líkir eftir líkamslykt af fólki.Með reglulegri notkun yfir sumarið má draga all verulega úr flugunni á svæðinu og minnka vandamálið gríðarlega til lengri tíma. Árangur sést strax á fyrstu vikunni.

CO₂

Gefur frá sér koltvísiring og laðar að sér fluguna á allt að 5.000 m² svæði.

360° útfjólublátt ljós

Aðlaðandi UV ljós fyrir fluguna. Virkar jafn vel að degi sem að nóttu.

Sogvifta og límgildra

Dregur mýið ofan í lokaðan safnbakka, þar sem þær drukkna eða ofhittna og drepast. Eða þær festast í límborðanum.

Þráðlaus

Gengur fyrir gasi. Engar snúrur, - virkar hvar sem er utandyra.

Veðurþolinn og öruggur

Slekkur sjálfkrafa á sér ef hann veltur. Hannaður fyrir norrænar aðstæður.

hefur unnið á bitmý síðan 2009

Predator Dynamic hefur sannað sig víða um Evrópu, ár eftir ár, og þegar sýnt góðan árangur við íslenskar aðstæður gegn lúsmýi og öðru bitmýi.

Predator Dynamic

TÆKNIUPPLÝSINGAR


EiginleikiUpplýsingar
Stærð svæðisAllt að 5.000 m²
Gefur frá sér CO2Líkir eftir andrátti manna
Líkir eftir líkamslyktNotar Octanol lyktarbeitu
AflgjafiGas(skrúfu), sama og fyrir grillið.
Stærð innpakkað45 x 58 x 47 cm
Stærð tækis40 x 70 x 70-110 cm hæð
Þyngd17 kg

5k

vinnur á allt að 5000 m² svæði

24klst.

vinnur alla
daga og nætur

hávaðalaust

aðeins lágt viftuhljóð

Ekkert eitur

hættulaust mönnum og dýrum

Hvað er í kassanum?

Einfalt að byrja


Predator Dynamic tækið

Sjálft tækið vegur um 17 kg og er hannað fyrir notkun utandyra við norrænar aðstæður.

Límborðar og lyktarbeita

Ein Octenol lyktarbeita fylgir með og dugar í um 4 til 5 vikur. Einnig fylgja þrír límborðar sem skipt er um eftir þörfum.

Stillanlegur standur og hælar

Hæðarstillanlegur standur, um 77 til 115 cm. og hælar fylgja með til að festa standinn betur á ójöfnu undirlagi.

Slanga og þrýstijafnari

Gasslanga og þrýstijafnari fylgja með(skrúfu), ásamt hlíf sem verndar gaskútinn og gerir uppsetninguna snyrtilegri.

Gaskútur fylgir ekki

Gaskútur fylgir ekki með og er það eina sem þarf að útvega sérstaklega. Einn hefðbundinn própangaskútur dugar að jafnaði í um það bil mánuð.

Leiðbeiningar

Skýrar leiðbeiningar fylgja með svo auðvelt sé að setja tækið saman og koma því í gang. Engin verkfæri eru þörf.

Þú getur alltaf keypt auka límborða(Stickypaper) og lyktarbeitur(Octenol) hjá okkur.
Sumartilboð er í boði með forpöntun þar sem hægt er að bæta við: 2 auka octenol + 3 límborðar.

Algengar spurningar

SPURNINGAR
OG SVÖR


Uppsetningin er einföld og krefst engra verkfæra. Með Predator Dynamic tækinu, sem vegur 17 kg, fylgir hæðarstillanlegur standur (77-115 cm, efsta staða hentar best gegn lúsmý) með festipinnum, ein Octenol lyktarbeita, þrír límborðar, þrýstijafnari(skrúfaður), hlíf yfir gaskút og ein AA rafhlaða í kveikjarann. Til að nota tækið þarftu aðeins að útvega hefðbundinn própangaskút, eins og notaður er á gasgrill, en hann er tengdur á nákvæmlega sama hátt við grill. Ath. að þetta er með skrúfu ekki smellugas.

Tækið dugir fyrir allt að 5.000 m² svæði. Best er að staðsetja tækið í 6-12 metra frá þeim stað sem fólk dvelur á, eins og við pall eða garðhúsgögn. Þannig dregur tækið frekar flugurnar frá þér. Einnig að það sé smá skjól í kringum tækið svo það sé aðgengilegt fyrir flugurnar að lennda í Predatornum.

Nei, tækið er bæði hljóðlátt og notar engin eiturefni. Einungis heyrist lágt suð í viftunni í sem sogar flugurnar inn í skúffuna.

Til að lágmarka flugnavandamálið er best að hafa Predator úti og í gangi allt sumarið. Byrja um leið og fyrsta flugan fer á stjá og alveg þar til þær hverfa fyrir veturinn. Þannig hefur þú mestan áhrif á stofninn á milli ára. Árangur sést svo strax á fyrstu vikunni, en því stöðugra sem tækið vinnur yfir tímabilið, því betur nær það að vinna á flugnastofninum á svæðinu.

mikilvægt til að halda uppi fullri virkni. Það eina sem þarf að hafa í huga er að skipta út Octenol lyktarbeitu á 4 til 5 vikna fresti og setja nýja límborða í eftir þörfum, sem fer eftir því hversu hratt þeir fyllast. Að lokum þarf auðvitað að skipta um gaskút þegar hann tæmist en algengt er að það sé á mánaðarfresti m.v. 10kg kút..

Octenol er sérstök lyktarbeita sem líkir eftir mannasvita og andardrætti. Hún hjálpar tækinu að draga að sér bitmý, lúsmý og moskítóflugur á mjög áhrifaríkan hátt.

Rakinn úr vatninu laðar fluguna að sér. Gott er að setja dropa af uppþvottalegi í vatnið því það brýtur yfirborðsspennuna og kemur í veg fyrir að flugurnar nái sér aftur á flug.

Nei, tækið vinnur einna helst á kvenkynsflugunni sem er sú sem sækir mest í fólk eftir blóði. Vélin hefur engin áhrif á gagnleg skordýr eins og býflugur.

pantið tímanlega

PANTA PREDATOR


Tryggðu þér Predator Dynamic á kynningarverði í forsölu.

Innifalið

Predator Dynamics Trap

1× Octanol lyktarbeita
3× Límborðar Stickypaper fylgja með hverju tæki.

157.500 ISK

Samtals
157,500 ISK169,400 ISK

Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt
Vinsamlegast sláðu inn gilt netfang
Vinsamlegast sláðu inn símanúmerið þitt

✓ Takk, pöntun þín hefur verið móttekin!
Við vinnum eins hratt og við getum úr öllum pöntunum og sendum þér allar upplýsingar innan skamms.

VIÐ SENDUM TÖLVUPÓST MEÐ GREIÐSLUPPLÝSINGUM.
PÖNTUN ER STAÐFEST ÞEGAR GREIÐSLA HEFUR BORIST.
ÞÚ GETUR SÓTT VÖRUNA Í REYKJAVÍK.
HEIMSENDING ER Í BOÐI Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU OG SENDINGAR ÚT Á LAND ERU SENDAR EFTIR SAMKOMULAGI.

Póstlisti

Netverslun


Innan skamms opnum við netverslun þar sem þú finnur allt sem þarf fyrir Predator Dynamic, ásamt fleiri vörum sem gera sumarið betra.

Skráðu þig á póstlistann okkar til að fylgjast með.

.

Pre ehf.
Kt: 530704-2460
Fyrirspurnir og stærri pantanir:
[email protected]

© 2026 Predator.is | Pre ehf.